Heheh, skrapp aðeins frá og ég hef varla undan að svara.
Sko ekki misskilja mig, ég er ekki að segja að það sé bara í "fínu lagi" að skrifa vísvitandi vitlausa íslensku. Það sem ég var að reyna að segja er eins og þú kemur inná sæmi, að ábendingar og annað slíkt er ekki af neinu nema hinu góða, jú ég er alfarið sammála því að það þarf að passa uppá tungumálið okkar enda vitum við öll að krakkarnir eru að rústa þessu æfagamla tungumáli með slangri og hentisemisbreytingum.
Það sem ég var að reyna að koma í skriflegt var að svona rosalegt umtal og hálfpartinn rifrildi er alveg út í hróa.
Þetta pirraði mig alltaf alveg rosalega að sjá svona skrif, en í dag get ég bara ekki pirrað mig á því, nema ég viti það að sá einstaklingur sé alveg í lagi og sé að gera þetta vísvitandi, því að þangað til má alveg eins búast við því að einstaklingurinn eigi við eitthvað vandamál að etja.
En eins og ég segi, ekki taka þessu sem að ég sé að réttlæta svona skrif, mér finnst bara eins og það hafi verið tekið full hart í árina í þessu tilviki, og hefði verið langbest að senda viðkomandi bara einkapóst með ábendingum í stað þess að eiðileggja þráðinn.
fart, þá eigum við eitthvað sameiginlegt, ég ruglast mjög reglulega á i-y reglunum, var aldrei svona en þetta er farið að slá saman hjá mér
Sæmi, og jú það er nú alveg rétt hjá þér að það sé full mikils ætlast að ritstjórar fari yfir alla pósta og lesi þá yfir og leiðrétti, en þetta var meira sagt í gríni en alvöru
