Sælir.
Ég vil byrja á að benda á það að ég notaði leitina en hún skilaði engum árangri sama hvað ég reyndi.
Rafmagnsspeglarnir hjá mér virka ekki og ég skil ekki afhverju. Ég er búinn að athuga öryggið og það er í lagi (rás 19) og á sömu rás eru ljósin innan í bílnum og miðstöðin... en það tvennt virkar bæði. Ég veit reyndar að það eru fleiri öryggi sem covera ljósin og miðstöðina að hluta.
Ég er búinn að athuga líka vírana sem liggja í falsinu í hurðina og þar virðist allt vera heilt og joystickið fyrir speglana virðist líka vera heillegt.
Því spyr ég... hvaða þætti ætti ég að athuga næst ? Af með hurðarspjaldið og athuga vírana þar eða kannski mæla eitthvað til að finna út hvort rofinn virki almennilega eða er þetta common problem sem er einföld lausn við ?
Með fyrirfram þökk, Geiri.

