Ég ætla að segja ykkur smá sögu þar sem ég hef alltaf ætlað að gera það en aldrei gert, ég hef aldrei áður skrifað almennielgan pistil hérna en látum reyna á þetta,
Ég er semsagt 17 ára núna, ég keppí í gokarti á íslandi og þetta er 4 árið mitt sem nú var að hefjast, í augnablikinu er ég í öðru sæti í íslandsmótinu eftir einn keppnisdag.
fyrsta árið mitt lenti ég í því í fyrstu keppninni að velta bílnum mínum í óhappi en ég kláraði það árið í 8 sæti, í hittífyrra endaði ég í 4 og núna seinasta ár í 2, hinsvegar það sem ég ætlaði aðalega að segja ykkur frá var dagur sem ég eyddi í Wigan á braut sem heitir Three sisters, sem fór í gang útaf þessu gokart dæmi.
Ég byrjaði á því að fljúga til skotlands og þaðan var haldið til Wigan með afa mínum og ömmu (afi er sá sem er búinn að vera með mér í mótorsporti alla ævi, og hann á bíl sem sumir ykkar kannast kannski við, 1975 bmw 2002 turbo, en ég á þeim tveim allt að þakka í þessum efnum), wigan spilaði einmitt sinn fyrsta leik í einsku úrvalsdeildinni þessa helgi en ég var busy að keyra þegar það átti sér stað.
Þegar ég mætti á brautina blasti við Ferrari 360 (modena?) og 911 turbo, þeir sem vildu gátu leigt sér þessa bíla til að leika sér á, á brautinni. Þar næst sá ég sport útgáfur af MG sem ég man ekki hvað heitir, racing útgáfur, með veltibúri og geðveikri fjöðrun.
það var í þessu sem proffarnir kendu mér á brautina og bílinn eftir að ég var tekin í "briefing" þar sem ég lærði allskyns trick. Ég fór sennilega 40 hringi í þessu og það var þvílík upplifun, eina sem ég var í vandræðum með fyrst var að það var öfugt stýri (má ekki segja h_o_m_m_a_stýri

), ég var nýbyrjaður að læra almennielga á bíl (hef svosem alltaf keyrt en var ekkert ofur flinkur á annað en gokart, gat samt keyrt tek það fram >.<) þannig að það var smá vesen að hitta á rétta gíra þegar maður er að einbeita sér að hanga inná brautinni. En þetta var bara upphitun, það sem ég fór til að keyra var single seater,
þetta er einhver sú rosalegasta upplifun sem ég hef kynnst, þegar maður botnaði bílin út beina kaflann, með rassin sleikjandi malbikið og vindin að koma í gegnum hjálminn og liggjandi ofaná vélinni... priceless.
ég lærði mikið af þessari ferð og endilega spurjið mig úti hana þar sem ég veit ekki alveg hvað ég á að segja meira nema eitt sem ég ætla að bæta við í lokin, ég lenti í rosalegri lísreynslu, það var beyja yfir hæð þarna, eiginlega alveg aflíðandi eftir langan beinan kafla með smá hlykk þar sem nánast ekkert var slegið af ( engin hraðamælir í bílnum en ég var á 6900 snúningum í 4 gír þarna), proffin sagði við mig " sleptu bensíngjöfinni alltaf í svona hálfa sekúndu þegar þú kemur þarna yfir, kominn með svona 40 hringi undir beltið í formula ford, fullur sjálfstrausts finnst mér ekki tilefni til að sleppa bensíngjöfinni.... afturendinn lyftist yfir hæðina, 90 gráður, beint á hlið niður brekku hægasta beygjan framundan, ekki spurja mig hvernig ég náði henni en ég held að reynsla úr gokartinu hafi bjargað mér

.
Vonandi var þetta skemmtileg lesning og endilega commentið.
kv
Kristján Einar
KEKKART SONAX racing
edit: typo og image resize
_________________
Kristján Einar
[url=http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=14304]
BMW 2002 Turbo ´75[/url]
gstuning wrote:
Ég og þú skulum gifta okkur svo ég geti komist á þennan 2002 turbo