Árekstur, tryggingarfélag og stóra spurninginn!

Sástu flottan BMW og vilt leyfa okkur hinum að njóta líka? Póstaðu því þá hér.

Árekstur, tryggingarfélag og stóra spurninginn!

Postby Kalli » Sat 27. May 2006 17:14

Best að gefa ykkur smá forsögu á þessari spurningu minni.

Svo vildi til að á leið minni í skólann við gullinbrú seint í mars þá var ég á hægri akgrein á 60-70km hraða, á vinstri akrein var bíll nýlagður af stað eftir ljós sem hann hafði verið stopp á og hann var á 20-30 sem og rauði passatinn á eftir honum, 1 sec áður en ég kom rykkir hann bílnum snögglega yfir á hægri akgrein með þeim völdum að ég skell aftan á hann án þess að geta flautað/bremsað etc.
Sem betur fer hélt minn bíll stefnu og náði ég að stoppa hann upp á gangstétt 50-100m neðar með loftpúðann í andlitinu og meira en litlu sjokki.
Hans bíll kastaðist upp fyir grjótgarð á kyrrstæðann bíl, næstum því á gangandi vegfaranda sem kastaði sér frá og síðan á tré, eftir það velti hann stórum grjóthnullung niður og endaði ofan á honum eins og sést á myndinni. (Grjótið er enþá úti á gangstétt 3 mán eftir þetta við gullinbrú, hvað er að?)

Ég og hinn ökumaður vorum einir í bílunum og hlutum við minniháttar áverka á hálsi og baki. Tryggingarfélagið dæmir mig í 100% rétti og borgar út kaskóið mitt.


Ég fékk sanngjarna upphæð fyrir bílinn sem var 12 ára gamall en hún var rétt ofan við hálfu miljónina. Þessi setning var aðeins sett inn hér vegna þess að ég hef séð mikið kvartað hér yfir ósanngirni í tryggingarfélögum þegar kemur að því að bæta gamla BMW/Bens bíla, en sjóvá borgaði mér "markaðsvirði" bílsins þó ég hefði getað fengið kannski 50-100kalli meira ef ég hefði verið heppinn.

Hins vegar langar mig allsvakalega að vita hvar bíllinn er staddur í dag, öllum líkum partaður.
Hann var seldur á tjónauppboði sjóvá og ennfremur hefði ég gaman af því að vita hvað hann var seldur á því það sem starfs. sjóvá bauð mér að kaupa hann á fannst mér aðeins of hátt verð.
Bíllinn var silfurgrár 525 94 árgerð.

Hundsvekkjandi að einu myndirnar sem ég á af bílnum voru myndir teknar úr símanum fyrir utan vinnuna á hlaupum inn..
Image


Svona endaði það.
Image


Jæja nýi bíllinn hans í rusli, muna kíkja í spegillinn næst þegar þú ert óþolinmóður.
Image


PS: Ef sá hinn sami ætlar að nota bílinn í vélarsvapp þá hef ég yfir höndum ECU bílsins sem þú mátt sækja.
Kalli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 68
Joined: Sun 03. Oct 2004 18:59
Location: Garðabær

Postby Kalli » Sat 27. May 2006 17:15

Þetta innlegg er ekki alveg á réttum stað, má endilega færa í viðeigandi flokk!
Kalli
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 68
Joined: Sun 03. Oct 2004 18:59
Location: Garðabær

Postby Djofullinn » Sat 27. May 2006 17:21

Það var partasala sem keypti hann. Mana ekki hvaða. Aðalpartasalan sennilega. Og þeir hafa pottþétt partað hann :)
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Svingur » Sat 27. May 2006 18:56

Djofullinn wrote:Það var partasala sem keypti hann. Mana ekki hvaða. Aðalpartasalan sennilega. Og þeir hafa pottþétt partað hann :)

Nei Danni held að Elli á Aðalpartasölunni hafi örugglega ekki keypt hann
BMW 530i 1988
to be 535i+

MIG LANGAR SVO....
Svingur
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Fri 31. Mar 2006 00:18
Location: Grafarvogur

Postby Djofullinn » Sat 27. May 2006 19:17

Svingur wrote:
Djofullinn wrote:Það var partasala sem keypti hann. Mana ekki hvaða. Aðalpartasalan sennilega. Og þeir hafa pottþétt partað hann :)

Nei Danni held að Elli á Aðalpartasölunni hafi örugglega ekki keypt hann
Nú ok það var allavega einhver partasala :)
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Svingur » Sat 27. May 2006 19:27

:lol:
BMW 530i 1988
to be 535i+

MIG LANGAR SVO....
Svingur
Kassabílstjóri
 
Posts: 122
Joined: Fri 31. Mar 2006 00:18
Location: Grafarvogur


Return to Áhugaverðir bimmar

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 33 guests