Þar sem bjórkvöldið góða er á laugardaginn má búast við ansi erfiðum sunnudegi og því færum við hittingin fram á laugardaginn. Sami staður og sami tími (bílastæðið við Laugardalsvöll kl. 14:00).
Heyrst hefur að um helgina verði til sýnis eitt stykki Rolls Royce í nágrenninu og því verður farið í örstuttan hóprúnt eftir hittingin yfir á Ásmundarsafn og gripurinn skoðaður. Ætli við við leggjum ekki af stað þangað um kl. 15.
Semsagt:
Hittingur á laugardaginn 27. maí, kl. 14:00 á bílastæðinu við Laugardalsvöll
Þetta verður ágætis upphitun fyrir bjórkvöldið!


