Skrítið hljóð!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Skrítið hljóð!

Postby Stanky » Thu 25. May 2006 17:37

Sælir,

Það kemur furðulegt hljóð úr bílnum mínum þegar ég tek af stað í fyrsta gír og bremsa mjög harkalega.

Þetta hljóð lýsir sér þannig að það kemur svona tikk, mjög reglubundið og það kýlir alveg upp þannig að maður finnur það í sætið.

Kemur líka þegar ég lendi í smá holum, vinur minn sagði að þetta gæti verið hjöruliðurinn, en myndi þetta hljóð ekki koma líka þegar ég læt bílinn renna og þegar bíllinn er alltaf á ferð?

Þetta hljóð kemur ekki ef ég er í 3 gír og gef í botn, (t.d.)

Hvað getur þetta verið ?

kv,
haukur
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby killerboot » Thu 25. May 2006 18:44

Drifskaftsupphengja???
Jón Ottesen
S. 8997383
jonott@internet.is

Mercedes Benz 420 SEL "87
Isuzu D-Max "08
Toyota Corolla "92
killerboot
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 11
Joined: Mon 06. Dec 2004 04:33

Postby HPH » Thu 25. May 2006 21:22

killerboot wrote:Drifskaftsupphengja???

Líklegast...

Þetta lýsir sér nokkurn veiginn eins og hjá mér og mín er hengjan ,,ónýt"
E46 330ix touring.
BMW er lífstíll. Við erum 10árum á undan öllum öðrum.
User avatar
HPH
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3209
Joined: Sun 04. Jan 2004 15:36
Location: inn í bílnum þínum.

Postby Stanky » Fri 26. May 2006 01:05

Ég fór undir bíl.... ekki með búkka, heldur bara tjakk.... (já, mjög heimskulegt)

Hjakkaðist á drifskaptinu og þá fór ég að heyra þessa smelli og klikk aftur....

Líka þegar ég snéri dekkinu heyrðust þessi klikk inní bíl, þannig að ég býst við því að þetta sé hún..

Hjöruliðurinn virtist vera OK!
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 15 guests