Myndaalbúmið er núna opið fyrir meðlimi klúbbsins!
Til að fá aðgang þarf að fara á --> http://myndasafn.bmwkraftur.is/ <-- og smella á "Registration" (efst í hægra horninu).
Skráið inn notandanafn (sama og á spjallinu!!), nafn, tölvupóstfang og lykilorð í innskráninguna ásamt öryggisnúmerinu sem birtist á myndinni.
Skráninguna þarf admin svo að virkja og verður það gert fljótlega en athugið þó að nokkrir dagar geta liðið þar til aðgangurinn er virkjaður. Tékkið bara reglulega á því hvort aðgangurinn sé orðinn virkur.
Vonandi virkar þetta sæmilega en annars er bara að hafa samband við undirritaðan.
PS: Þeir sem þegar hafa farið í skráningarferlið og ekki búið að virkja aðganginn þurfa að skrá sig aftur!



