Ég keypti mér Tomtom 700 tæki í UK í fyrra, mjög gott tæki notabene, og það er með alla vestur-evrópu nema ísland.
Virkaði vel fyrir mig í UK.
Og svo fór brósi reyndar á road-trip um evrópu núna í mars síðastliðnum á sínum Toyota Corolla 1.6 Gli ´93 ekinn 300.000 + km
Fór með Norrænu til Danmerkur, fór svo til þýskalands, sviss, ítalía, spánn, frakkland, aftur til þýskalands og svo til danmerkur og aftur heim með norrænu og hann sagði að tækið hefði leitt þá alla leið.
Ég fór til þeirra í RS og spurði hvort þeir ættu íslandskort fyrir þetta tæki og kallinn sagði að ég hefði gert vitleysu með að kaupa vittlaust tæki!!!!! Fyrirgefðu, eru þeir ekki með bara vitlaust tæki í umboðs-sölu.
Allavega, hann vissi ekki hvort það myndi virka að setja kortið þeirra í mitt tæki og að auki kostar þetta kort 16.900 kr hjá þeim. Sem mér persónulega finnst frekar mikið, sérstaklega þar sem varla er hægt að villast hérna á íslandi, hefði bara verið gaman að eiga þetta.
En annars, hefur einhver prófað að setja þetta kort í annað en Garmin tæki?