Jæja, núna hafa margir tekið upp á því að hressa upp á leddarann enda kannski komin tími til
Ég ætla að skrifa nokkurskonar How-to en þetta er eins og ég gerði það, mér var sagt að gera það svona og þetta kom glimrandi út hjá mér
1. þrepFarið er í Kaj pind ( Askalind 2a, á móti Habitat, keyrir niður ramp) og keypt er eftirfarandi
Leðurhreinsir
Leðurlit
Leðuráburð
2. þrepÞegar að heim er komið með leðurgotteríið þá er að þrífa leðursætin vel og vandlega, taka allar mylsnur og svona sem gætu leynst á milli saumana, gott er að nota pensil til að ná því helsta úr
3. þrepBorið er á leðurhreinsirinn, gott er að nota svamp og hreinsa lítinn part í einu. Gott er að notast við saumana til að taka ákveðið svæði í einu.
Passa að hreinsirinn nái ekki að þorna á þessu og þurrka með pappír áður en að það þornar. Þetta ætti að þrífa leðrið og gera leðrið móttækara fyrir leðurlitnum. Einnig er gott að þrífa þetta ákveðið og með fastri hendi
4. þrepEftir það er borið á leðurlitinn, ég persónulega notaði bréf í það en gott væri einnig að nota svamp. Gott er að bera örlítið meira af lit í svæðin sem hvað verst eru farin til að ná sem bestu áhrifum.
Ég fór áðan í Kaj pind og hann benti mér á að maður ætti ekki að láta litinn þorna heldur þurrka hann eftir hverja áferð. Bera ætti nokkrar umferðir til að fá sem bestu niðurstöður
Ég hinsvegar lét það þorna og bar síðan á áburðinn. Það virkaði vel fyrir mig en ég býst við að hans aðferð sé betri :p
5. þrepEftir að þetta er þurrt þá ber maður á leðuráburðinn og þetta virkar sem nokkurskonar "glæra" eða "sealer" og heldur því litnum frá fötum manns og vernar einnig gegn uppþornun leðursins þar af leiðandi verða minna af sprungum í því. Eftir að búið er að bera það á bíður maður eftir að það þorni og svo tekur maður mjúkan klút og þurrkar
vel af til að ná öllum litarleyfum úr. Reyna að ná öllum aukalit úr sætunu annars er hætt á að það smiti yfir í föt.
Mælt er með að bera svo leðuráburð amk 3x á ári til að leðrið haldist sem heillegast
6. þrepNjótið ávöxt erfiðis ykkar, pantið ykkur flatböku og opnið kannski einn kaldan yfir Fifth gear
JSS E36 M3
Fyrir
Eftir
Arnarf E34 540
Fyrir
Eftir
Ég tek enga ábyrgð á þessu en þetta virkaði glimrandi fyrir mig.
Myndir eru í Eigu Arnarf og JSS. Vonandi að maður megi nota þær til að sýna árangurinn en ef ekki skal ég glaður fjarlægja þær
Takk fyrir
Óskar[/img]