eins og ég segi þá er þetta bara viss nálgun og miðast við staðalaðstæður
jafnan gengur út á það að áætla tapstuðul í drifrás og ég hafði aðeins einn afturdrifsbíl sem staðal en ég modda jöfnuna lítillega til að áætla fwd og 4wd bíla.
jafnan er rétt og notast við þekktar stærðir líkt og flatarmál framenda, Cd stuðul, eðlisþéttleika lofts, þyngdarhröðun jarðar auk þekktra gilda fyrir bíl.
svo er þetta kannski meira gert til gamans en sem einhver nákvæm lausn, þetta ætti að sýna vissa mynd en auðvitað ekki fullkomna eins og menn geta séð ef þeir stimpla inn gildi fyrir e60 m5 eða álíka.
ég efast ekki um að golf gti sé hörku bíll en að hann sé svona mikil græja kaupi ég kannski ekki
