E38 fer ekki í gang

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

E38 fer ekki í gang

Postby valdiþ » Tue 18. Apr 2006 15:07

Sælir spjallverjar

Ég er með einn E38 730 bíl sem fer ekki í gang hjá mér :oops:

Hann byrjaði á því að vera leiðinlegur í ganginum, máttlaus og gekk ekki á öllum 8, virtist ekki vera að fá nóg bensín inn á sig. Þetta var svona on/off dæmi þar sem stundum lét hann svona og stundum var allt í himnalagi.
Eftir nokkra daga svona (og svo 2 daga þar sem allt var í lagi) þá byrjar hann allt í einu að drepa á sér þegar maður sleppti bensíngjöfinni og stuttu seinna sama dag þá drepur hann alveg á sér og hefur ekki farið í gang síðan.

Ég var búinn að láta lesa af honum þegar gangurinn var leiðinlegur en það kom ekkert í ljós við það.

Þar sem ég fæ ekki tíma á verkstæði fyrr en eftir helgi vildi ég athuga hérna hvort þið væruð með einhver svör á reiðum höndum fyrir mig. Bent mér á líklega orsakavalda í þessu sambandi sem ég gæti svo kíkt á og athugað, ég hef smá kunnáttu í almennum bílaviðgerðum en kann ekkert á BMW vélar.

Þetta er semsagt '95 árg af 730 E38 bíl, með 3l v8 vélinni.

Öll hjálp vel þegin
valdiþ
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 72
Joined: Tue 15. Feb 2005 20:24
Location: Akranes

Re: E38 fer ekki í gang

Postby Yeah'z » Tue 18. Apr 2006 17:23

Bensíndæla??

eða varadekkið hehe :wink:
Yeah'z
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Tue 14. Feb 2006 19:34

Postby Geirinn » Tue 18. Apr 2006 18:00

Athugaðu allar slöngur í húddinu.. hvort þær séu morknar eða götóttar.

Minn lét öllum illum látum þegar það var gat á slöngunni sem fer úr síuboxinu og það lýsti sér eins og hjá þér.

Reyndar m20b25. Þegar ég reif þessa slöngu svo úr þá var hún merkt '89 og í margföldu drasli :)
E30 325i Coupe - Shadowline | SELDUR
User avatar
Geirinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2399
Joined: Fri 02. Sep 2005 19:28

Postby valdiþ » Tue 18. Apr 2006 21:17

Þetta er ekki bensíndælan, reif hana úr áðan og skoðaði. Hún virkar eins og á að vera. Spurning með rafmagnið að henni, athuga það betur á morgun (orðið helv. kalt úti).

Allar slöngurnar í húddinu eru í góðu ásigkomulagi, horki morknar né götóttar, skoðaði það áður en ég keypti bílinn og fór aftur yfir það núna.

Takk fyrir ábendingarnar, þigg fleiri :oops:
valdiþ
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 72
Joined: Tue 15. Feb 2005 20:24
Location: Akranes

Postby Knud » Tue 18. Apr 2006 22:11

Hvað með síuna? Hjá mér var hún allavega undir aftursætinu farþega megin aftur í.

Hljómar samt nákvæmlega eins og þegar bensíndæla fór hjá mér
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby Knud » Tue 18. Apr 2006 22:12

Dettur líka í hug relay fyrir bensíndælu, sem var staðsett undir afturbekknum hjá mér allavega
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Postby valdiþ » Tue 18. Apr 2006 22:27

Sían og relay er hvorugt undir aftursætinu, allavega sá ég ekkert annað en bensíndæluna þegar ég opnaði þar.

Mér fróðari menn gætu kannski bent mér á hvar þetta er staðsett?
valdiþ
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 72
Joined: Tue 15. Feb 2005 20:24
Location: Akranes

Postby Knud » Tue 18. Apr 2006 22:28

valdiþ wrote:Sían og relay er hvorugt undir aftursætinu, allavega sá ég ekkert annað en bensíndæluna þegar ég opnaði þar.

Mér fróðari menn gætu kannski bent mér á hvar þetta er staðsett?


Æji ég meina, sían er undir bílnum alveg við tankinn samt þannig séð undir aftursætinu farþega megin afturí. Ef relayið er ekki þarna, þá bara er ég ekki viss
User avatar
Knud
Getawaybílstjóri
 
Posts: 731
Joined: Sat 28. May 2005 20:09
Location: rosaleg

Re: E38 fer ekki í gang

Postby Yeah'z » Wed 19. Apr 2006 03:10

það er líka ein slanga á bakvið innspýtinguna sem að á til með að detta stundum út hjá mer og þá gengur bíllin hjá mer algjörum trunntugangi og sprengir og læti..

farðu með gott vasaljós og kíktu undir soggreinina leitaðu í miðjunni og þar gæti slangan kannski hafað losnað frá.. þú smellir bara smelluendanum á slönguni aftur í með skrúfjárni

annars er þetta bara relie eða eitthvað :whistle:
Yeah'z
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 29
Joined: Tue 14. Feb 2006 19:34

Postby valdiþ » Thu 20. Apr 2006 17:34

Jæja, fékk rafvirkja í lið með mér í dag og við fórum í smá bilanaleit.

Það fyrsta sem við sáum var að bensíndælan var ekki að fá rafmagn, við fundum relayinn fyrir hana, prófuðum að tengja hann beint á rafgeyminn og hann virkaði :?

Eftir smá tilraunir þá fundum við það út að spennan yfir relayinn dettur alltaf niður þegar kemur álag á hana, við beina mælingu þá var spennan 12v en þegar relayinn var settur í samband þá datt hún niður.

Við prófuðum líka að tengja framhjá relayinu og fá dæluna í gang en hún virtist ekki ná að dæla bensíni fram að vélinni. Spurning hvort að einhver loki sé ekki að opnast?

Semsagt, bensíndælan fer ekki í gang nema það sé tengt framhjá relay en þrátt fyrir að hún hafi farið í gang við það þá nær hún ekki að dæla bensíni fram að vélinni.
valdiþ
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 72
Joined: Tue 15. Feb 2005 20:24
Location: Akranes


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 24 guests