Undarleg hljóð eftir smávegis leikfimi...

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Undarleg hljóð eftir smávegis leikfimi...

Postby drolezi » Sat 08. Apr 2006 17:26

Jæææja. Núna var ég áðan að leika mér í sólinni á stóra bílaplaninu mínu.
Fólst þetta mestmegnis í því að beygja og gefa í.
Ætli þetta hafi ekki varað í svona 5 mínútur þar sem ég var að dunda mér að keyra í hringi og tók eins og 1 eða 2 vel útilátin slide.

Það sem þá gerðist var að það skyndilega bættist við eins og hátt hljóð(og þá meina ég öfugt við djúpt hljóð) frá bílnum. Hljóðið bættist við eftir eina krappa beygjuna. Ef ég halla mér út úr bílnum þá heyrist mér sem hljóðið komi frá hægra framhorni bílsins, líklegast úr hjólabúnaði.

Þetta hefur gerst einusinni áður og þá var hljóðið horfið eftir að bíllinn hafði staðið kyrr í einhverja 6 klst. Það kom þá einnig eftir svipað krappa beygju.

Núna langar mig að vita hvort fólk hafi einhverja hugmynd hvað gæti amað að?
Hefði haldið að þessir bílar ættu nú að geta þolað svona smotterí eins og þetta var.

Bifreiðin sem um ræðir er '92 árgerð af 320, E36, sjálfskipt.

Hún stendur nú og kólnar úti á stæði og vona ég auðvitað að hljóðið verði horfið eftir smástund. Kannski best að taka það fram að auðvitað var hún orðin vel heit þegar ég tók upp á þessum asnaprikum.

Viðbót;
Ef ég ætti að líkja hljóðinu við eitthvað þá myndi ég segja að það sé eiginlega bara nákvæmlega eins og þegar maður snýr stýrinu eins mikið og maður getur, þá kemur eitthvað hljóð í lok snúningsins.
Last edited by drolezi on Sat 08. Apr 2006 18:18, edited 1 time in total.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Postby drolezi » Sat 08. Apr 2006 18:17

Hljóðið er allavega farið núna.
drolezi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 253
Joined: Sun 12. Jun 2005 18:43

Postby CosinIT » Sun 09. Apr 2006 09:16

kom það þegar þú vars að beygja, eftir að hafa beygt óvenjumikið óve4nju oft á stuttum tíma, minnir mig á subaru 1800 sem ég var einusinni að leika mér á.
þá varð hann allt í einu mjö léttur í stýrir og aukahljóð komu eftir að ég hafi sikk sakkað eins og asni í heilangan tíma á malarvegi :roll:

er þetta þá ekki bara einhvað í krigum stýrisunitið sem er ekki sammála gjörðum þínum?


því að hljóðið hætti lúka á gamla subaru eftir að maður hætti að sikk sakka :D
Skoda Superb 2004 1,9tdi daily driver
Toyota Touring 91 vinnubíll
Mazda 323 1998 1.5 verið að laga
Toyota Corolla GT 85 Í uppgerð
Toyota Corolla GT 85 fann annan í uppgerð
VW Bjalla 1968 í geymslu
BMW project í vinnslu
User avatar
CosinIT
Kassabílstjóri
 
Posts: 164
Joined: Thu 23. Jun 2005 22:17

Postby OZ-569 » Sun 09. Apr 2006 12:49

Gæti verið að það vanti vökva á stýrið, hef lent í þessu sjálfur, ef of lítill vökvi er á kerfinu myndast froða í kerfinu og kemur þá svona hljóð, svo nátturulega lætur þú bílinn standa og þá jafnar þetta sig. En kemur alltaf aftur ef þú ert eikkað að taka á stýrinu. Prófaðu að bæta vökva á stýrið og sjáðu hvort þetta lagist.
BMW e21 316 - dáinn
BMW e36 318is - í notkun
OZ-569
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 55
Joined: Sat 04. Dec 2004 17:05
Location: Hafnarfjörður


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 22 guests