Getur einhver fróður frætt mig um hvernig hægt er að stilla hægaganginn? finnst hann ganga frekar hratt, og kall á smurstöð fannst það einmitt líka.. Erum við að tala um einhver eldflaugavísindi eða er þetta eins og að taka sælgæti frá smábarni?
Þetta er einsog að taka Hrútspunga frá smábarni... í M30 allavega þar er ein skrúfa sem liggur lárétt framm með miðri vélinni undir stóru hosuni sem bensíngjöfin er við( ég er rosa vitlaus í þessum vélamálum og kann ekkert að lýsa þessu betur )
Danni wrote:en svona af forvitni, hvað gengur vélin hratt í lausagangi?
min? hún er eitthvað yfir 1000, fer ofar þegar kalt er... er bara leiðinlega hávær, er búinn að panta tíma í lestur á mánudaginn, sé til hvað kemur úr því..