A.H. wrote:Hvernig skipti ég um númeraljósaperuna á e36 325i coupe bílnum mínum. Á maður að geta kippt plastinu út e-n veginn eða hvað??
Þú skrúfar listan fyrir ofan númerplötuna af. Það eru 2 stjörnuskrúfur fyrir hliðina á námeraplötuljósunum, skrúfar þær úr og þá losnar allur listinn. Síðan skiptirðu bara um perur og skrúfar aftur á
takk kærlega, var búinn að pæla í þessu en skrúfurnar virðast helvíti ryðgaðar, þannig að ef maður setur stjörnuskrúfjárn á þær þá virðist stjörnuformatið hálfmolna Áttu nokkuð ráð við því
svona númersljós getur verið leiðinlegast í heimi virkar stundum að nota bítara og "bíta" um skrúfuna og reyna að snúa (þegar að hún er ónýt eins og þú lýsir )
Alpina wrote:er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,