Var að versla mér M5 (kannski ekki besta ákvörðun lífs míns m.v. gengisþróun síðustu vikna, en einhverntímann verður maður bara að hætta þessu hangsi og drífa í þessu).
- 2003 árgerð
- Lítið keyrður (um 50 þús km)
- Einn eigandi
- Kaupi hann af því umboði (BMW umboð) þar sem hann var keyptur nýr
- Nokkuð vel útbúinn (Nav, sóllúga, xenon, leður, sætishitarar, þjófavörn, sjálfvirk loftræsting, Bluetooth, o.fl.)
Bíllinn er á leiðinni í skip og kemur því á klakann von bráðar. Býst við að þetta verði gríðarlegt stökk frá þeim bíl sem ég var á síðast (BMW 318i - E46).
Myndir.




