Ég ætlaði að vera rosa duglegur í dag og græja hitt og þetta í E28 bílnum einsog að taka "afa" krómbogana af hjólaskálunum, en einsog við var að búast þá er soltið um rið þarna undir, ekkert svaka vandamál að framan ég þarf hvorteðer að skipta um bretti öðru megin og skipti þá bara um hitt í leiðinni (virðast ekki kosta mikið (veit reyndar ekki með sprautun)) en það er meira vesen að aftan. Hvað er hægt að gera til að redda sona, er þetta bara að sparsla? og er það ekki hörku vesen svo vel sé, svo þarf að fara með allann trukkinn inn í sprautun einhverstaðar sem er öruklega töluvert meira mál en að taka bara tvö bretti.
Hvað segja reyndari og vitrari menn að hægt sé að gera í þessu án þess að það kosti mig annað einsog bíllinn kostar.
?




