Sælir.... Þegar ég fékk bílinn í upphafi var alltaf smá rafmagnsvesen, rafmagnið fór af á svona 2 vikna fresti, til eða frá.
Núna í morgun var hann rafmagnslaus og fékk mömmu til að gefa mér start, allt virkaði og ég tók langan rúnt niður á laugarveg. Þar stóð bíllinn í rúma 3 klukkutíma, svo kem ég útí bíl, sný lyklingum og nákvæmlega EKKERT gerist, engin hæg snúningshljóð eða ekkert. Vinur minn kemur og gefur mér start, ég keyri heim og tek auka hring í þeim tilgangi að hlaða geyminn. Kem svo heim, drep á bílnum og ætla að starta aftur, strax, en það gerist það sama. EKKERT gerðist, engin hljóð eða neitt.
Ég fékk notaðann altarnator og geymi síðasta haus, og hann hefur verið til friðs þangað til núna.
Hvað er vesenið?
kv,
haukur



