Hvernig er best að taka kítti af lakki ?
Er gott að hita það eða eitthvað svoleiðis eða jafnvel nota heitt vatn?
Er hægt að kaupa einhverja gúmmíspaða eða álika ?

Kristjan wrote:vá ég ætlaði svoleiðis að fara hrauna yfir þig ef þú værir að meina bodykit...
Angelic0- wrote:Kristjan wrote:vá ég ætlaði svoleiðis að fara hrauna yfir þig ef þú værir að meina bodykit...
Afhverju að hrauna yfir hann ef að hann er að taka það af ?

xiberius wrote:Ég lennti í vandræðum með svona kítti á lakki á bíl sem ég átti fyrir nokkrum árum. Ég náði þessu af án mikilla vandræða með því að fara niðrí Bílanaust og versla mér eitthvað sem er kallað "strokleður" (og ég er ekki að skálda þetta!)
Þetta er svona eitthvað gullt gúmmíhjól sem þú setur framan á borvélina þína, og nuddar svo basicly bara kíttið af. Þarft bara að passa þig að fara geðveikt varlega og ekki vera með það á lakkinu lengi, vegna þess að það getur, og mun ef þú ert of lengi, taka ekki bara kíttið af heldur lakkið líka...
...en þú nærð allavegana kíttinu af svona...

gunnar wrote:Djöfull er þetta sniðugt þetta strokleður.. Svínvirkaði..
Eitt annað sem ég er að pæla varðandi kítti, núna þarf ég að fara kítta meðfram brettaköntum hjá mér. Var ekki til eitthvað sér tape sem var svo þægilegt að nota í svona, auðveld að beygja með því og svona. Minnir að þetta hafi verið mjótt tape sem menn notuðu og svo bara málningartape útrfrá því. var fínt til að móta línurnar fyrir kíttinu.
Veit eitthver hvað ég er að bulla ?
Users browsing this forum: No registered users and 38 guests