bebecar wrote:
fart wrote:
Ég er ekki búinn að fá afhent, en ég tók nokkrar myndir á símann. Er í einhverjum vandræðum með að koma þeim af honum.
Er búið að segja þér hvenær þú færð afhent? Og ertu sáttur við litaval, felgur ect?
Ég á að fá afhent á fimmtudagskvöld eða föstudags morgun. Ég sá að þeir voru að vinna í honum áðan þannig að það gæti allt eins orðið í dag (borgaði allt í gær þannig að það er allavega klárt).
Litaval: Fullkomlega sáttur. Ég er bæði búinn að sjá eftir því að hafa pantað þennan og verið rosa feginn að ég gerði það. Því síðan ég pantaði hef ég hugsað um að breyta í svartan, hvítan, silverstone og sérpanta titansilber, en ég hef alltaf fallið aftur að þessum lit. Það þýðir væntanlega að ég er sáttastur við hann.
Felgur: Já mér finnst þær alveg geðveikar, og hafa vaxið mikið í áliti hjá mér. Ég var að spá í að negla M6 felgur til að nota sem vetrargang (einnn til sölul á ebay á 1400euros buy it now), en ég ætla að bíða. Ég fer allavega ekki í stærra en 20" ef ég skipti.
Eina sem ég finn að felgunum er að þær eru eiginlega full silfraðar (ljósar), allavega miðað við felgurnar sem voru á Concept bílnum, sem mér finnst MIKLU flottari.
Ég gæti alveg hugsað mér að láta dekkja orginal felgurnar aðeins.
