Frá mbl í morgun...
Grænni BMW bifreið var stolið á bílasölu í Reykjavík í fyrrinótt. Þjófurinn ók til Keflavíkur og hugðust lögreglumenn hafa hendur í hári hans á Reykjanesbrautinni ofan við Keflavík í gærmorgun. Þjófurinn ók inn í Keflavík þar sem hann komst undan lögreglu.
Skömmu síðar hringdi íbúi í Heiðarhverfi í Keflavík og tilkynnti um að bíl hefði þá rétt áður verið ekið á steinsteyptan vegg við heimili hans. Þegar lögreglumenn komu á staðinn var þjófurinn á bak og burt en allmiklar skemmdir voru á bílnum. Rannsóknarlögreglan í Keflavík fer með rannsókn málsins.
Hálvitar þessir þjófar...


