Jæja núna er bíllinn kominn í mínar hendur og ég gæti ekki verið neitt mikið ánægðari! Ég ætlaði að flytja svona bíl inn en þá fékk ég þetta uppí hendurnar! Nákvæmlega það sem ég var að leita að
Þetta er semsagt bíllinn sem Alpina flutti inn, var síðan keyptur af Einaro og núna á ég hann.
Smá upplýsingar sem ég ætla að stela frá Einari:
Litur Demant-Svart-sanseraður.
Lækkaður 60/60 H&R gormum með stillanlegum Koni dempurum.
Topplúga Handvirk.
Svartur toppur.
M3 Leðurinnrétting Komplett Sportstólar frammí, 2 sæti afturí.
Map-light spegill.
MtechII-leðurstýri.
Hvítar skífur með rauðum mælum ala M.
Z3 skiptiarmur (short shift) með M/Mótorsport leðurgírhnúð.
9" x 16" BORBET A felgur ET 15 með 15mm spacerum ((offsettið er orðið 0 ))
M-Tech II spoiler kit.
XENON ljós, 6000k ,,,,Bara,,,,------->>> Í lagi eins og meistari Alpina myndi orða það
Síðan er ég búinn að kaupa flækjur í hann, fékk þær hjá Sveinbirni og komu þær undan hvítu blæjunni hans. Þær fara undir bráðlega
Bíllinn er núna á 14" vetrarblingerum en borbet-inn fer undir um leið og ég læt sprauta eina felguna. Ein felga eyðilagðist hjá Einari og keypti hann nýja og þarf að sprauta hana.
Allavega er ég himinlifandi og ætla að láta myndirnar tala

Þetta eru allt myndir frá síðasta sumri.
