by saemi » Fri 17. Feb 2006 11:12
Þetta fer algjörlega eftir aðstæðum hverju sinni. Ef vélin er mikið keyrð án þess að nokkuð hafi verið gert við heddið, segjum 70.000km+ þá myndi ég alvarlega íhuga það að taka það í gegn komplett.
EN ....
Þegar um er að ræða einn rocker arm sem brotnar, eða 2 eða 3, þá finnst mér það ekki réttlæta það að taka vélina úr bílnum ef hægt er að gera þetta á minni tíma með mini fyrirhöfn og minni kostnaði í bílnum!!!! Þó svo að það brotni rocker armur, þá þarf það ekki að þýða að það sé eitthvað að vélinni annað.
Það er alveg sama þó það sé auðveldara að taka vélina úr bílnum, það kostar líka tíma. Það verður bara að meta svona lagað í hvert skipti, það er ekki hægt að alhæfa hvað er best í hvert sinn. Ég vona að það hafi enginn hér haldið að ég væri að mæla með að skipta um alla rocker arma með heddið fast á blokkinni!!!!
En að alhæfa eitthvað um þetta vegna þess að manni hafi ekki tekist það sjálfum er fullgróft. Það segir bara til um reynslu þína, ekki annarra. Alhæfing segir til um reynslu allra.
Þó svo að það hafi aldrei verið gert, eða allir geri eitthvað á sama hátt, þá er ekki þar með sagt að það sé ekki hægt að gera hlutina öðruvísi.
Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,