arnibjorn wrote:Jónki 320i ´84 wrote:arnibjorn wrote:AEvar wrote:Flott að vita..
Ég hef séð þessa bíla fyrir 3000 þarna úti.. hugsa bara að maður ætti ekki að taka það ódýrasta endilega..
En ef maður lætur senda þetta með skipi þarf þá samt ekki að fara út og keyra hann niðrá höfn?
Hvernig virkar þetta?
Jú annað hvort ferðu sjálfur út og sérð um allt eða kaupir þjónustu frá t.d. Smára.
Ég mæli 100% með Smára, toppmaður þar á ferð

Er nokkuð eitthvað í gangi hjá ykkur Smára? Þú ferð alltaf svo fögrum orðum um hann að ég er orðinn svolítið forvitinn?

Hehe nei nei ekkert svoleiðis, finnst bara eðlilegt og minnsta mál í heimi fyrir mig að mæla með manni sem ég átti mjög góð viðskipti við og kom bara í alla staði vel fram við mig og þá sem ég hef komið í samband við hann. Hann meira að segja gerði sér tíma þegar hann kom til Íslands í Janúar að hitta mig og félaga minn sem flutti inn bíl í gegnum hann, finnst það mjög svo vel gert af honum þar sem hann var bara á íslandi í 4-5 daga og kemur sennilega ekkert heim aftur á árinu.
Það er nú finnst mér bara vera góð ástæða fyrir því að mæla með honum og koma öðrum í samband við hann, þar sem hans viðskiptahættir eru 100%
