Var að keyra um daginn á svona 3000 snúningum og allt í einu missir bíllinn afl og gengur leiðinlega. Ég tek kertaþræðina úr sambandi, einn í einu og kemst að því að hann gengur ekki á strokk 4. Jújú fyrsta sem mér datt í hug var kveikjan.
Í dag skipti ég um allt í kveikju. þar að segja kerti, kertaþræði, kveikjulok og kveikjuhamar.
Viti menn hann gengur ekki enn á þeim strokk...
Eitthverjar hugmyndir hvað gæti verið að?


