Þórir wrote:
Sælir.
Mér finnst þessi vera ágætlega verðlagður en maður hefur auðvitað ekki séð hann. Nú, þú getur td. séð hvort að hann sé með M-fjöðrun með því að skoða í bækurnar sem fylgja honum, þar sést allur aukabúnaður sem er í bílnum auka annarra upplýsinga. Það breytir töluverðu hvernig búnaður er í bílnum, læst drif og M fjöðrun geta gert þennan bíl töluvert meira spennandi í marga augum.
Svo er annað varðandi verðið: er bíllinn pre facelift? Það hefur töluvert mikið að segja hvort hann sé fyrir eða eftir facelift, E39 bíllinn er töluvert vígalegri þegar hann er kominn með angel eyes og tilheyrandi.
Nú varðandi 540 bílinn sem Sæmi er að selja get ég ekki verið sammála hinum. Jú, það er sanngjarnt verð sett á þann bíl en sá bíll er fjórum árum eldri auk þess að vera dýrari í rekstri. Þetta fer allt eftir því hvað þú ætlar að gera. Td. ákvað ég, þegar ég flutti minn bíl inn, að taka 523. Það gerði ég einfaldlega að því að ég taldi hann verða auðveldari í rekstri og endursölu.
Ég myndi allavegana segja að ásett verð sé nokkuð sanngjarnt, svona án þess að hafa séð bílinn.
Kveðja
Þórir I.
Ég er algjörlega sammála síðasta ræðumanni, sérstaklega með Angeleyes og faceliftið. Og M-fjöðrun gerir gæfumuninn !