Ef ástandið er mjög slæmt hjá mér þá er það háþrýstiþvottur til að ná sem mestu af lausu drasli af og svo Maxi Extra og láta aðeins standa (alls ekki lengi, þá festist drullan bara aftur), taka svo af með háþrýstiþvotti og loks sápuþvo með góðri sápu og hreinum þvottahanska. Þetta dugir yfirleitt til að taka alla drullu af, stundum þarf ég tvær umferðir af Maxi á verstu staðina en á endanum fer allt með þessu. En ég mæli ekki með að nota Maxi nema bóna bílinn á eftir! Það er algert möst!
Kannski maður kíki á þessi efni sem fartarinn talar um en mér finnst olíueyðir sem heitir ekkert nema eitthvað númer hljóma hálf scary.
Eitt varðandi svampa, mér finnst þeir oft svo lélegir, harðir og grófir, sem maður hefur fundið í búðum hér að ég er löngu hættur að nota þá. Bjahja nefndi hérna einhverntíman þvottahanska frá Meguiars sem ég ákvað að prófa og sé ekki eftir!
Og eins með svampana (og líka þvottahanska), notið nógu andskoti mikið af vatni, ekki tæma svampinn og nudda lakkið með tómum svampi!

Og ekki vinda alltaf drulluna úr svampinum ofan í fötuna til að maka henni aftur á lakkið.

Nota mikið af hreinu sápuvatni!