Jæja, þá var ég að vakna
Fór í dag í rvk, Mútta féll algjörlega fyrir E90 og er búin að festa sig á einn svoleiðis og þar með var hætt við innflutning á E66
Ætlaði að reyna að fá hana til að sjoppa E60, en hún labbaði framhjá E90, (þessum með leðrinu í sýningarsal B&L) hoppaði inn í hann, og sagði svo við sjálfa sig: "Ég ætla að fá einn svona takk, með Svartan með ljósbrúnu leðri!" svolítið stórt stökk niður á við, en ef að menn pæla í verðskalanum og pælir í að fjárfestingin er komin niður í 4,1 þá er það kannski þess virði, og maður er alltaf 100% á því að bíllinn er í ábyrgð og allt slíkt er ekkert vesen!
En út í aðra sálma, ég fékk gömlu framljósin hans Bimmer áðan, ætlaði aldeilis að brenna heim og smella þeim á... lappa upp á djásnið, en nei... ég steinrotaðist.. enda er 2tíma svefn á 65klst bara bull ofkeyrsla!
Ætla að smella þessu á bílinn á morgun, verður allt annað að sjá hann þegar að "gulu" stefnuljósin verða farin! Svo þarf ég að ná mér í glær hliðarstefnuljós, en langar svolítið að sjá hvernig það kæmi út á E39 að vear bara með "side repeater delete" en veit samt ekkert hvort að það er eitthvað vit í því
Allavega, það er allt að gerast, UUC Motorwerks flywheel og svo "Heavy Duty" SACHS kúpling & Pressa. Alveg fáránlegt hvað orginal flywheelið er þungt! Bara koma með smá "update"
