Jæja maður hunskaðist loksins til að fara með bílinn í viðgerð vegna pústsins. Það endaði með því að það þurfti að kaupa tvo kúta í bílinn um 25.000 hvor.
Ég sótti bílinn í gær og vá þvílíkur munur ég gat keyrt bílinn og hlustað á útvarpið í einu . Síðan fer ég að borga á eftir þá léttist veskið um rúman 50þús kall .
Það er ekki svo mikið. Bara hvarfakúturinn á Mözduna mína kostar rúmlega 100 þúsund kall Það er fáránlega mikið og þetta er bara venjulegur blikk kútur. Reyndar er þetta verð frá umboðinu og þeir í Ræsi er þekktir fyrir mjög hátt verð á varahlutum. Þetta kosta örugglega mikklu minna í Bílanaust en þar fær maður ekki nærri því eins góð gæði í varahlutunum.