Ég veit ekki með ykkur en ég les orðið alveg skuggalega lítið af íslensku efni....les orðið nánast bara ensku
Svo les ég það mikið af fræði- og tæknibókum að lestur er eiginlega það síðasta sem ég geri þegar ég er að hvíla mig. Les kannski aðeins um jólin einhverjar skáldsögur á íslensku en svo er það bara búið
Það er einfaldlega lítið framboð af íslensku efni á netinu sem er almennilega skrifað og höfðar til ungs fólks. Svo eru allir farnir að skrifa á netið með ýmsum styttingum og slettum án nokkurrar yfirferðar sem er ekki til að bæta úr skák.
Er það ekki bara skylda sem telja sig geta skrifað nokkuð góða íslensku að vanda sig og vera öðrum fordæmi. Ég veit það allaveganna fyrir mitt leiti þá reyni ég að vanda mitt mál þar sem ég bæði aldist upp við og var í skóla þar sem mikið var lagt á að tala rétt mál.

