Jæja vandamálið mitt er það að gaur sem kom og ætlaði að "hjálpa" eyðilagði einn boltann sem heldur öðrum öxlinum við drifið. Vorum búnir að losa hinn öxulinn með minni aðferð (halda dekkinu kjuru og sá sem var á skrallinu kippti fast í það þangað til boltinn losnaði) svo hringdi síminn minn og ég fór í hinn endan að tala og kom aftur og þá var asninn kominn með rör sem er hærra en bíllinn sjálfur og notaði það sem átaksskapt og byrjaði á að skemma boltann smá, hélt að hann hefði losaði hann og snéri bara meira þartil boltinn var orðinn alveg hringlaga að innan.
Við komum ekki wisegrip töng að boltanum og vitum bara ekkert hvernig við eigum að losa hann núna! Any ideas?



