Ég fór áðan niður í B&L og aldrei hef ég lent í annarri eins þjónustu
Ég fór og sótti loksins grillið sem hefur vantað á bílinn. Gat hvergi annars staðar fengið það (eftir MIKLA leit) og neyddist til að kaupa það eins dýrt og hugsast getur hjá umboðinu (rúmlega 18þús kr.). En ég var búinn að sætta mig við verðið (ekkert annað hægt) þegar einn starfsmaðurinn bauðst til að reyna lækka verðið á því örlítið EF ég skyldi sækja allt hitt draslið sem ég var búinn að panta (tvö önnur grill sem fara í framstuðarann). Ég bara okey, ekkert mál
Note bene að þetta er töluvert ódýrara en bæði T.B og Autoco gáfu mér tilboð í.
Djöfull eru B&L orðnir liðlegir




