Nú er komið nýtt ár og með því nýtt meðlimatímabil. Verið er að ganga frá greiðsluseðlum sem verða sendir út til allra núverandi meðlima auk þeirra sem hafa skráð seint á árinu 2005. Greiðsluseðlarnir fara í póst núna um helgina eða í næstu viku. Meðlimagjaldið er óbreytt frá því í fyrra, 2000kr.
Sem fyrr fá gildir meðlimir í klúbbnum góða afslætti hjá nokkrum vel völdum fyrirtækjum (sjá undir Fríðindi á heimasíðunni). Einnig fá meðlimir auðvitað góða afslætti á allar samkomur á vegum félagsins auk aðgangs að sérstöku meðlimasvæði hér á spjallinu þar sem meðlimir taka meðal annars þátt í að móta starfssemi félagsins. Að auki bætist við nú í janúar að gildir meðlimir fá aðgang að sínu eigin safni undir myndasafni BMWKrafts þar sem þeir geta uploadað myndum.
Meðlimagrúppan (sem hefur t.d. aðgang að meðlimasvæðinu "Meðlimir" hér á spjallinu) verður tæmd og gildum meðlimum 2006 svo bætt við jafnóðum og þeir greiða árgjaldið og þannig fá þeir aftur aðgang að meðlimasvæðinu.
Stefnan er að árið 2006 verði alls ekki síðra en 2005 þegar kemur að uppákomum í kringum Kraftinn. Síðasta ár var nokkuð gott, poolmót, go-kart, dynodagur, bíladagar, árshátíð og spurningakeppni innan um auðvitað ýmsar samkomur og hittinga. Við ætlum auðvitað að halda þessari hefð áfram og bæta um betur ef eitthvað er!
Á næstu vikum munu plönin næstu mánuðina skýrast betur og við stefnum á að pósta fljótlega drögum að dagskrá eitthvað fram á vorið.
Til gamans eru hér nokkrar myndir frá síðasta ári úr myndasafninu:








BARA gaman!
Með BMWKraftskveðju.


