Málið er að ég lenti einu sinni í spjalli þar sem menn komust að þeirri niðurstöðu að líklegt væri að þeir sem hefðu svipaðann smekk á bílum, hefðu líka svipaða smekk á öðrum hlutum.
T.d. höfðu bíladellumennirnir oft líka áhuga á úrum, flugvélum, hljómflutningstækjum o.s.frv. Jeppakallarnir höfðu áhuga á vélsleðum, útilegum og umhverfismálum eða álíka.
því langar mig að pósta hér könnun þar sem menn geta svarað hver helstu áhugamál sín AUK BMW eru.
Þeir sem eru með mörg geta svo gert grein fyrir þeim í svörum hér fyrir neðan.
Ég er bara að fiska eftir efnislegum áhugamálum, ekki fjölskyldunni, dýrum eða kynlífi þar sem þetta er náttúrulega í fyrsta sæti hjá öllum


