Þið hafið væntanlega heyrt um málið í deiglunni núna að undanförnu er það ekki?
Kennari á Ísafirði sem var bendlaður við kynferðislegt ofbeldi og DV fjallaði um málið
án þess að hafa neinar sannanir og birti myndir af manninum o.frv.
Daginn eftir hafði sá maður tekið sitt eigið líf vegna umfjallanna um hann.
Ég sá þennan undirskriftalista á mbl.is/b2.is þar sem núna er í gangi undirskriftalisti sem
skorað er á að ritstjóri DV láti af störfum eða breyti ritstjórnarhætti sínum.
http://www.deiglan.com/askorun/
Nú skora ég á ykkur að skrifa undir. DV hefur rústað of mörgum íslenskum
fjölskyldum og á svona æsifréttamennska ekki heima á landi eins og þessu að mínu mati.
Þau samtök sem að þessum aðgerðum standa eru Deiglan.com, Samband
ungra sjálfstæðismanna, Ungir jafnaðarmenn, Stúdentaráð HÍ, , Múrinn.is,
Samband ungra framsóknarmanna, Tíkin.is, Ung frjálslynd, Heimdallur,
Ung vinstrigræn, Vaka, Röskva og H-listinn.
Kveðja, Palli





