BMW og sætisbelti

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

BMW og sætisbelti

Postby Danni » Sat 07. Jan 2006 02:55

Er það algengt í BMW að spólurnar í sætisbeltunum læsi sér? Ég er nú búinn að lenda í því tvisvar, fyrra skiptið kom það reyndar fyrir hjá Hannesi (316i) á Touringnum en svo núna áðan hjá mér. Virðist vera sem að einhver lás fer í gang við högg sem gæti verið árekstur. En eina höggið sem hefur kom hjá mér milli þess tíma sem farþegi notaði beltið i lagi og þegar farþegi reyndi að nota beltið eru högg frá bassakeilunni, og belti sem er fjær henni læstist.

Þetta er þannig að það er bara ekki hægt að toga beltið út. Fer lengra inn en ekkert út. Núna er annað beltið bara að kremja leðursætið mitt :(

En hvernig laga ég þetta? Er hægt að laga spóluna eða þarf bara að fá allt stykkið nýtt?
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Postby Angelic0- » Sat 07. Jan 2006 08:07

Ertu að grínast ??

Eins gott að þetta gerist ekki hjá mér !
Owner of: Anax Tuning IvS
Danmark
--------------
99' BMW E36 330i Turbo - 634whp/781wnm
ImolaRot
--------------
04' Ford F550 6.0 Powerstroke - ???hp/???nm
ImolaRot
--------------
06' BMW E61 535d - 442hp/871nm
Spacegrey Metallic
User avatar
Angelic0-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15561
Joined: Tue 18. May 2004 03:33
Location: Keflavík

Postby gstuning » Sat 07. Jan 2006 10:34

Þetta kom einu sinni fyrir í bílnum hans stefáns en eftir einhvern tíma þá hætti það, þarft að læra smá lagni við að ná læstu belti til að virka aftur,

t,d láta það síga rólega inn , eða bara opna innréttinguna og losa það svoleiðis, smyrja þetta í leiðinni bara.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Danni » Sat 07. Jan 2006 23:36

Jæja ég var eitthvað að reyna að laga þetta í dag. Losaði belitð að neðan og þá gat ég gefið slaka svo að það fór til baka og varð laust. Hélt að það væri komið í lag og festi aftur. En nei, aftur festist það. Það virðis sem að það fer of langt inn þegar það fer til baka og læsist. Fer það langt inn að það er ekki hægt að gefa því slaka til að losa. Fatta þetta ekki. En reyndi að ná allri spólunni úr til að geta fengið nýja og skipt, en gat það ekki. Svo eru ekki leiðbeiningar um hvernig á að taka spóluna úr í Bentley Servise Manual, er bara fyrir E34 sem er ekki hægt að halla sætisbakinu fram á aftursætunum. Held að málið sé bara að vera sætisbeltislaus á þessum eina stað þar til næstu mánaðarmót. Þá hef ég efni á að kaupa nýja spólu og láta TB skipta um :mrgreen:
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests