Að verða bremsulaus :(

Hér skal spjalla um BMW.

Að verða bremsulaus :(

Postby O.Johnson » Mon 05. May 2003 20:57

Ég var að keyra úr Grafarvoginum í dag þegar "bremsuljósið í mælaborðinu fór allt í einu í gang. (Ljósið sem kviknar þegar handbremsan er á). Ég var fyrst ekki alveg að fatta hvað var í gangi og tók aðeins í handbremsuna til að athuga hvort hún væri ekki alveg niðri og mér til mikillar furðu, þá var hún alveg niðri. Þá prófaði ég að stíga létt að bremsuna, og ekkert gerðist. Steig hana alveg í botn og petallinn fór bara niður í gólf og bíllinn bremsaði ekkert. Ég panicaði og hægði á mér með handbremsunni og fór út í kant, opnaði húddið og sá að forðabúrið fyrir bremsuvökvann var tómt. Hvað átti ég að gera ??? Átti ég að taka áhættun og keyra heim og nota bara handbremsuna eða ??? Ég var ekki með síman minn og gat þar af leiðandi ekki hringt á leigubíl eða kranabíl. Ég tók bara sénsinn og lallaði heim úr Grafarvogi út á Seltjarnarnes og var alla leiðinna á svona 30 - 40 km/h og bara með hazardin á. Mér til mikillar skelfingar komst ég að því að handbremsan er ekki í mjög góðu standi og var nætsum búinn að þruma aftan á einhvern Volvo. En á endanum komst ég heim á bílnum eftir mikið flaut og læti.

Hefur einhver af ykkur lent í svipuðu með bílanna ykkar, bara bilað eitthvað upp úr þurru ???
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby íbbi » Mon 05. May 2003 21:32

það hlýtur að leka hjá þér bremsurör eða eitthvað? einhver leki undir bílnum? lenti í því á camaronum að keyra í holu og höggva í sundur bremsurör, keyrði næstum framman frekar háu bílastæði :twisted:
"Drive it like you stole it!"
Maxima Qx v6.
User avatar
íbbi
Kassabílstjóri
 
Posts: 185
Joined: Sat 26. Oct 2002 19:51

Postby O.Johnson » Mon 05. May 2003 21:41

Þegar ég kom heim þá prófaði ég að pumpa bremsurnar í smá tíma og leit síðan undir bílinn og það var ekket þar :shock:
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby saemi » Mon 05. May 2003 21:53

Já, ég er sammála Íbba, þetta er að öllum líkindum leki. Bara spurning um hvar?

Það þýðir náttúrulega ekki að pumpa bremsurnar núna, það er enginn vökvi eftir til að leka.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Halli » Mon 05. May 2003 22:32

þap gæti veri höfuðdæla sem er farinn gáðu hvort það sé leki inn í bílnum við petalann
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby 325i » Mon 05. May 2003 22:34

Athugaðu dæluna. Það fór eitthvað heimskt gúmmí í henni hjá mér og lak allt inn í kassann, heví vesen
325i
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 62
Joined: Fri 03. Jan 2003 21:40

Postby Halli » Mon 05. May 2003 22:45

325i wrote:Athugaðu dæluna. Það fór eitthvað heimskt gúmmí í henni hjá mér og lak allt inn í kassann, heví vesen

inní hvaða kassa?
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby joipalli » Mon 05. May 2003 23:42

Þú hefðir átt að fara á næstu bensínstöð!

Ertu búinn að finna hvað var að?

Þetta kennir mér að vera alltaf með bremsuvökva meðferðis..
joipalli
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Thu 10. Oct 2002 02:27
Location: Vesturbær

Postby Raggi M5 » Mon 05. May 2003 23:58

Halli wrote:
325i wrote:Athugaðu dæluna. Það fór eitthvað heimskt gúmmí í henni hjá mér og lak allt inn í kassann, heví vesen

inní hvaða kassa?


Gírkassann???
E39 525d Touring ´03
Toy Yaris T-Sport ´02
Yamaha R1 ´05


Alpina wrote:M5 er testosterone.... Pamela Anderson,,,,, vs 540 er lufsa með spælegg eða drengjabringu.......
User avatar
Raggi M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3236
Joined: Wed 04. Sep 2002 22:02
Location: Njarðvíkingur!

Postby Halli » Tue 06. May 2003 00:07

það gæti allveg veri' en bremsurnar eiga ekki að fara niður við það :lol:
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby saemi » Tue 06. May 2003 00:08

Nei, það er sennilega rétt. Forðabúrið gæti klárast, en ég held nú örugglega að það ætti að haldast þrýstingur á bremsunum þó að kúplingin fari að leka.

Sæmi
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby Halli » Tue 06. May 2003 00:14

saemi wrote:Nei, það er sennilega rétt. Forðabúrið gæti klárast, en ég held nú örugglega að það ætti að haldast þrýstingur á bremsunum þó að kúplingin fari að leka.

Sæmi

það gerir það annað hvort er farið rör eða slanga eða höfuðdælan er farin
veit einhver hvernig bíll þetta er ?
Corvette c5
Bmw 330i
Halli
Getawaybílstjóri
 
Posts: 995
Joined: Sat 26. Oct 2002 14:07
Location: Reykjavík

Postby rutur325i » Tue 06. May 2003 01:06

þetta er mazda 323 sem hann á
Renault 19 '95 - bráðabirgða
BMW E-30 325i; IM-870, Farinn
BMW E-30 320i; IR-406, Seldur
rutur325i
Getawaybílstjóri
 
Posts: 589
Joined: Tue 15. Oct 2002 14:44
Location: Grafarvogur

Postby bjahja » Tue 06. May 2003 11:14

Sjitt, það er örugglega svakalegt að lenda í þessu. En eins og Jói Palli sagði þá hefðirðu kannski bara átt að fara á næstu bensínstöð :?
En gott að þú slappst heill úr þessu, og eins og þeir segja þá er þetta örugglega einhver leki.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby O.Johnson » Tue 06. May 2003 18:45

Pústið brotnaði í spón fyrr um daginn og ég reif allt undan sem var að dragast eftir götunni, nema smá bút sem ég batt upp með bandi. Eftir smá stund þá bræddi hitinn á púströrinu bandið bara í sundur og það skall niður í götu og dróst bara með bílnum. Það hefur örugglega bara henst utan í eitthvað bremsurör undir bílnum og gert gat á það.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Next

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 20 guests