Pabbi er nefnilega að spá í að fá sér bíl á rekstrarleigu en ég hef alltaf heyrt fólk setja út á það. Var bara að spá hvað er svona slæmt við það.


alpina.b10 wrote:gallinn er að þegar þú skilar honum þá þarftu að borga ALLANN viðgerðarkostnað (t.d bara ef það eru rispur eða einhver smá beygla þá þarftu að borga sprautunina) það getur alveg verið doldið kostnaðarsamt þegar á að fara gera við allar hagkaupsbeyglunar og rispurnar...
þannig að ég mæli ekki með svona... en sumum finnst þetta kannski fínt



Helgi M wrote:En ég skil ekki eitt,, fær maður pening til baka þegar maður skilar bílnum??? er maður ekki bara að borga fyrir afnot af bílnum??? og svo líka það er limited akstur á þessu er þaggi?? eins og til dæmis 20 þús km á ári?!?!?! eða eitthvað þannig,, það er eitthvað sem ég gæti aldrei tekist á við, hehe

98.OKT wrote:Helgi M wrote:En ég skil ekki eitt,, fær maður pening til baka þegar maður skilar bílnum??? er maður ekki bara að borga fyrir afnot af bílnum??? og svo líka það er limited akstur á þessu er þaggi?? eins og til dæmis 20 þús km á ári?!?!?! eða eitthvað þannig,, það er eitthvað sem ég gæti aldrei tekist á við, hehe
Þessi peningur sem menn eru að tala um að fá þegar þeir skila honum, er tryggingin sem maður borgar í upphafi, sem þeir nota ef fólk er að svíkjast undan að borga mánaðarlegar greiðslur.

HPH wrote:rekstrar leiga er snild.
sko ég var með hyundai Getz og var með X upphæð á mánuði og þegar ég skilaði honum á hafði ég borgað minna fyrir hann en ég hefði tekið hann á bíla lánum.
Dæmi: Hyundai Getz 1600 BSK / verð: 1.450.000
Rekstraleiga:
mánaðar gjald er c.a. 20.000 á mán.
20.000 X 12mán. = 240.000
og eingin aföll sem þú þart að hugsa um þegar þú skila bílnum.
Lán:
Kaupverð: + 1.450.000 kr.
Innborgun: - 362.500 kr.
Meðalgreiðsla er: 67.448 kr. á Mán. x 18. = 1.214.073 (
og afföll eru 250.000 til 300.000 á ári.
(aukakosnaður af láni sem bætis við.
Stofngjald 1%
Stimpilgjald 1.5%
Þinglýsingarkostnaður + 1.350 kr.
Vextir: 10,7%
Hlutfallstala kostnaðar: 15,59%
Lánshlutfall: 75% )
birt á ábyrðar.
þannig að ég mæli frekar með rekstraleigu.
Users browsing this forum: No registered users and 57 guests