Stuttur og lítið merkilegur listi hjá mér.(enginn BMW

)
3x beinskiptar dollur + beinskiptur fólksbíll.
1. Mazda 323 1.5GLX sedan árg.1987 grár. Átt'ann í mánuð. Ökumaður Chevrolet Berettu sem að keyrði yfir á rauðu og lenti á afturbrettinu (Berettan sko) á mínum bíl sem var allur skakkur og óökufær á eftir. Ótrúlega litlar skemmdir á þeim ameríska.
2.Corolla 1.3XL HB árg.1988 4.dyra rauður. Átti hræið í tvö ár en seldi þó bara á 50.þús kr. lægra verði en ég keypt'ann á.
3.Corolla 1.3GL HB Sp.Series 1992.4.dyra og auðvitað rauður!!!
Aftur nánast sami bíllinn??? Nei nú er mér nóg boðið........
Borgaði allt of mikið fyrir hann en hann stóð sig ágætlega greyið.
Átti hann í þrjú ár, fékk eiginlega nýjan bíl þegar ég tróð 15" álfelgum undir'ann eftir fyrsta árið. Bara einn aðili sem hafði áhuga á að kaup'ann og eftir ca. mánaðar pælingar varð loksins af því.
4.Mercedes Benz C180 Esprit 10.1993 hvítur ekinn tæpa 104.þús km.(80.þús 6.2000) plussáklæði. (vonandi löngu búið að reka hönnuð þeirra) Þeir sem hafa séð áklæðin í W202 bílunum vita hvað ég á við. Í heildina hinn fínasti bíll sem endist mörg mörg ár í viðbót.
5. ???? Það eina sem pottþétt er að það verður þýsk græja. Vonandi í síðasta lagi í haust. Sennilega kemur einhver uppítökubíll á milli sem verður vonandi merkilegri en fyrstu þrír sem ég átti.