
Já færð töluvert meira fyrir peninginnArnarf wrote:Svoleiðis,
Ég hugsa að ég myndi frekar taka þá 740iA
Mér þætti óþægilegt að borga jafnmikið fyrir jafngamlan þrist og sjöu

Djofullinn wrote:Geðveikur bíll!
En þar sen þú ert kominn í þessa upphæð, er ekki bara sniðugra að flytja inn M3 3.0? Minnir að Smári hafi talað um að geta fengið slíkan til landsins á 1,2![]()
Það er bíll sem væri skítlétt að selja! EF um góðan bíl væri að ræða
Hann er örugglega ekki að tala um að þeir liggi á hverju strái heldur að það sé hægt að fá einn og einn góðan bíl á því verði.Gunni wrote:Djofullinn wrote:Geðveikur bíll!
En þar sen þú ert kominn í þessa upphæð, er ekki bara sniðugra að flytja inn M3 3.0? Minnir að Smári hafi talað um að geta fengið slíkan til landsins á 1,2![]()
Það er bíll sem væri skítlétt að selja! EF um góðan bíl væri að ræða
Ég væri nú alveg til í að sjá þann bíl sem fæst inn á þessu verði með
öllu greiddu.
Ef við tökum bara létt dæmi;
Almennilegur bíll ca. 10.000 €
Það gerir gróft ca. 1.500.000 kr. hingað kominn,
En þá á eftir að greiða fyrir þjónustu utanlands 100-150 þúsund.
Ég held að það þurfi að svindla all verulega á aðflutningsgjöldum til að
þetta standist.
En ef einhver getur komið góðum M3 bíl inn fyrir 1,2 millj. þá væri
ég til í að sjá hann (og þá er ég ekki að tala um '93 árg keyrðan 250k).


Djofullinn wrote:Tók þessu heldur ekki illa
Jújú auðvitað verður að taka mið af ástandi og annað slíkt. Og mér myndi ekki detta í hug að flytja inn svona bíl nema það væru fáir eigendur, topp þjónustubók og að láta ástandsskoða hann.
Auðvitað eru miklar líkur á að þeir séu illa farnir og lélegir, en ég trúi ekki öðru en að allavega 1 af þessum 4-5 bílum sem hægt er að fá á þessu verði sé góður. Og það eru eiginlega alltaf einhverjir E36 M3 á mobbanum og autoscout á 7-8 þús evrur. Þeir geta ekki allir verið handónýtir.
Síðan held ég líka að Smári reyni eins og hann geti að selja fólki bara góða bíla og efast ég því um að hann sé að benda mönnum á eitthvað drasl. Maður veit samt aldrei![]()
En allavega, ég myndi hiklaust kaupa M3 á 7000 evrur ef hann væri með 100% þjónustubók og kæmi vel út úr ástandsskoðun.

fart wrote:Smári á enga bíla til að selja.. hann aðstoðar nú bara við kaup á bílum sem aðrir eiga, seljendur sem hann þekkir ekki neitt.

Jónki 320i ´84 wrote:fart wrote:Smári á enga bíla til að selja.. hann aðstoðar nú bara við kaup á bílum sem aðrir eiga, seljendur sem hann þekkir ekki neitt.
Það er ekki það sem málið snýst um, bara að fá hann til þess að athuga bíla og fá að vita ca. innflutningsverð á þessum bílum,
hann ætti að vita það einna best þar sem þetta er nú vinnan hans
fart wrote:Jónki 320i ´84 wrote:fart wrote:Smári á enga bíla til að selja.. hann aðstoðar nú bara við kaup á bílum sem aðrir eiga, seljendur sem hann þekkir ekki neitt.
Það er ekki það sem málið snýst um, bara að fá hann til þess að athuga bíla og fá að vita ca. innflutningsverð á þessum bílum,
hann ætti að vita það einna best þar sem þetta er nú vinnan hans
Jújú.. Bara algengur misskilningur að hann séð að selja bíla og beri þ.a.l. ábyrgð á þeim, sem hann gerir ekki.

Users browsing this forum: No registered users and 38 guests