Ég er orðinn frekar pirraður á læsingunum í bílnum hjá mér. Til að byrja með þá hefur læsingin á skottið aldrei virkað, skottið læsist semsagt ekki. Sílsinn bílstjórameginn áhvað síðan að eyðileggjast þannig að ég verð að opna/læsa farþegamegin en ég gat svosem alveg lifað með því svona í bili. Þarf líka alltaf að læsa tvisvar, bíllinn opnast semsagt sjálfkrafa þegar það er búið að læsa 1sinni.
Lenti síðan í því að í dag þá neitaði bíllinn bara að opnast, eins og hann væri rafmagnslaus eða e-ð? Reyndi öll trix en ekkert gekk. Fór þá í vinnuna á vinnubílnum og fékk síðan félaga minn til að koma eftir það til að gefa bílnum straum. Ákvað samt að reyna einu sinn enn að opna á hefðbundinn hátt og þá opnast bíllinn eins og ekkert sé, eða svona allavega eins og áður og rauk í gang
Fer niður í bæ og læsi bílnum, ekki sniðugt. Þegar ég ætla að opna aftur þá gerist aftur ekki neitt og síminn minn inní bíl auðvitað. Endar með því að vinur vinar míns sem ég hitti þar smeigir sér í gegnum skíðapokagatið en það er samt ekki hægt að opna innanfrá! Bíllinn rýkur samt í gang og félaginn þarf því að fara útum gluggann. Ég geri mig tilbúinn til að fara inní bílinn gegnum gluggann og keyra heim en þá opnast hurðin en vill ekki lokast aftur

Bara hægt að "hálfloka" henni. Hefur reyndar stundum verið vesen að loka í mesta frostinu en það hefur þó lagast þegar bíllinn hitnar.
Því er bíllinn bara uppi á smíðaverkstæði hjá pabba og bíður eftir athygli núna.
Hvað er eiginlega að, þetta er að gera mig geðveikan og ég ætla ekki að hreyfa bílinn fyrr en þetta verður fixað. Nenni ekki aftur að standa eins og auli fyrir utan bílinn niðrí bæ að reyna að komast inn

. Eflaust margir sem veltu því fyrir sér hvort ég væri að reyna að brjótast inní bílinn eða e-ð
Plís e-r ráð??