ANDSK.!#$&$%#"&#%&#&%"#%"!%($

Hér skal spjalla um BMW.

Postby morgvin » Wed 30. Apr 2003 02:42

Sektir, umferðarpunktakerfið og löggæslumyndavélar

Hvernig snúa einstaklingar sér sem fá tilkynningu um að ökutæki í þeirra eigu hafi verið myndað með löggæslumyndavél vegna brota á umferðarlögum ?




Hvað eru tilkynningar

Þegar umferðarlagabrot eru upplýst með löggæslumyndavélum, annað hvort rauðljósamyndavél eða hraðamyndavél, er skráðum eiganda send tilkynning þess efnis að ökutæki hans hafi verið myndað þegar ökumaður þess annað hvort ók yfir gatnamót á rauðu ljósi eða ók of hratt.

Tilkynningin er send skráðum eiganda ökutækisins eða umráðamanni þess.
Ef miklar líkur eru taldar til þess að ökumaður í umrætt sinn hafi verið skráður eigandi þess, þ.e.a.s. myndin af ökutækinu og ökumanninum sýnir einstakling af sama kyni og á líku reki og skráður ökumaður, þá er tilkynningin send á greiðsluseðli. Það er þó aðeins að því tilskyldu að brotið leiði ekki til sviptingar ökuréttinda eða að viðkomandi hafi verið réttindalaus þegar brotið framið.
Í öllum öðrum tilvikum er tilkynningin send á venjulegu bréfsefni og viðtakandanum bent á að gefa sig fram við lögreglu og greina frá því hver hafi verið ökumaður í umrætt sinn.

Óháð því hvort tilkynningin hafi verið send á greiðsluseðli eða ekki, þá getur viðtakandinn haft samband við það lögreglulið sem sendi tilkynninguna og greint frá því hver var ökumaður í umrætt sinn eða hann getur skrifað nafn hans á tilkynninguna og sent viðkomandi lögregluliði í pósti.
Samkvæmt reglugerð um sektir, nr. 280/1998, skal tilkynna lögreglu hver var ökumaður innan 14 daga frá dagsetningu tilkynningarinnar.

Ef tilkynningin er á greiðsluseðli getur viðtakandinn greitt sektina sem tilgreind er í tilkynningunni og þar með lokið málinu, en það er líka hægt að rita upplýsingar um ökumann á tilkynninguna, hafi hann verið annar en viðtakandinn og senda til lögreglunnar. Þá ber að hafa það sérstaklega í huga, að öll viðurlög vegna brotsins, umferðarpunktar og færsla í ökuferilskrá, fara á nafn þess sem tilgreindur er á tilkynningunni.
Þannig getur foreldri sem hefur lánað barni sínu bifreið í umrætt sinn fengið slíka tilkynningu vegna umferðarlagabrots barnsins og ef foreldrið greiðir sektina fyrir barnið með tilkynningunni, þá færast viðurlögin á foreldrið, ekki barnið, þar með talið umferðarpunktar.

Ef skráður eigandi getur ekki eða vill ekki upplýsa hver var ökumaður, er heimild í umferðarlögum til að sekta hann fyrir það og nemur sektin kr. 20.000,-
Til baka
Breytt: 26. júlí 2002

Tekið af lögreglan.is

fékkstu sekt eða bara boðaður niðrá lögreglustöð ?

[/b]
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby Haffi » Wed 30. Apr 2003 02:51

Fór bara í myndatöku í dag klukkan 18:41 :(
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Re: ANDSK.!#$&$%#"&#%&#&%"#%"

Postby bjahja » Wed 30. Apr 2003 14:04

Haffi wrote:Ætla að taka bílinn af númerum á morgun og byrja að spara :(


Ef við lítum á björtu hliðarnar, þá geturðu notað fullt af pening núna til þess að gera hann betri og flottari :wink:
Last edited by bjahja on Wed 30. Apr 2003 14:09, edited 1 time in total.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby morgvin » Wed 30. Apr 2003 14:08

semsagt þú varst beðinn um að koma uppá lögreglu stöð.

Og þér datt ekki í hug að aflita á þér hárið eða snoða þig eða eitthvað til að vera ekki maðurinn sem var að keyra ?
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby Heizzi » Wed 30. Apr 2003 14:25

Hann myndi ekkert græða á því, ef maður var ekki sjálfur á bílnum þá verður maður vísa þeim á þann sem var á honum... nema einhver vilji taka á sig punkta fyrir hann, það er auðvitað smá möguleiki.
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby Haffi » Wed 30. Apr 2003 14:27

Ég er búinn að redda þessu ... missi ekki prófið þar sem það var ekki ég sem var að keyra ... ég lánaði vini mínum bílinn og hann játaði á sig brotið !!! :) Samt kostaði það mig 5000 kall að fá það uppúr honum 8)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby bjahja » Wed 30. Apr 2003 14:29

Eins og stendur í reglunum hér fyrir ofan, getur maður neitað að segja hver keyrði bílinn og borgað þá 20.000kr sekt en engan punkt. Eins og maður hefur séð í bandarískum þáttum þá þarf maður ekki að segja neitt ef maður á það á hættu að gera sjálfan sig sekan, tú plí þe fifþ :lol:
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Heizzi » Wed 30. Apr 2003 14:31

Góður :D
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby bjahja » Wed 30. Apr 2003 14:36

Haffi wrote:Ég er búinn að redda þessu ... missi ekki prófið þar sem það var ekki ég sem var að keyra ... ég lánaði vini mínum bílinn og hann játaði á sig brotið !!! :) Samt kostaði það mig 5000 kall að fá það uppúr honum 8)


Greinilega ágætis vinur, gott að þú náðir að redda þessu.
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby Jói » Wed 30. Apr 2003 14:41

Haffi wrote:Ég er búinn að redda þessu ... missi ekki prófið þar sem það var ekki ég sem var að keyra ... ég lánaði vini mínum bílinn og hann játaði á sig brotið !!! :) Samt kostaði það mig 5000 kall að fá það uppúr honum 8)


Ert þú ekki í lögregluskólanum. :roll:

Þú ert aldeilis stórkostleg fyrirmynd til að halda uppi lögum og reglum í landinu. Mútar fólki hægri vinstri og brýtur löginn og ég veit ekki hvað. :)
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Wed 30. Apr 2003 15:13

LOL!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby arnib » Wed 30. Apr 2003 15:16

Hahahahahaha :D :shock:
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby oskard » Wed 30. Apr 2003 15:17

hehhehehehehehe :lol: :lol: :lol:
oskard
 

Postby Haffi » Wed 30. Apr 2003 18:49

:oops: :oops: :oops: :oops: :oops: Ég er ekki í honum... ekki kominn með aldur :) en hey ég borga bara þennan 20.000 kall ég kannast ekkert við hver var að keyra bílinn!! Var í partýi daginn áður og týndi bíllyklunum ! Og það kom einhver með bílinn heim í gærkveldi og skilaði bílnum og lyklana í póstkassann........ Æi ég veit ekkert hvað gera skal!
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55

Postby joipalli » Wed 30. Apr 2003 20:11

Vonum bara allir að löggan sé ekki að fylgjast með þessu spjalli... Er annars ekki einhver meðlimur í löggunni? :o
joipalli
Kassabílstjóri
 
Posts: 214
Joined: Thu 10. Oct 2002 02:27
Location: Vesturbær

PreviousNext

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests