Þetta er 1997árgerð (framleiddur í nóvember 1996) af BMW 523i,
hann var knúinn áfram af M52B25 mótor en er í dag með gottið úr //M5 (S62B50).
Sagan á bakvið þennan bíl er nokkuð strembin, en ég er búinn að þurfa að standa í bölvuðu basli með hann þó er ég aðeins búinn að eiga hann síðan í Nóvember, en þess getur að nefna að ég keypti bílinn í tölvuverðu lamasessi!
Svona var bíllinn þegar ég keypti hann og vélarvana;
Eftir að hafa eytt tölvuverðum tíma og vinnu í að setja nýjan mótor ofaní kom í ljós að það var eitthvað "brak í gírkassanum" og kom síðar í ljós að kúplingsdiskurinn snéri öfugt!
Þegar að bíllinn var síðan kominn á rólið var þetta "tilkeyrt" fyrstu 500km og síðan var farið út í smávegis leikaraskap sem að endaði illa þar sem að ölvaður farþegi greip framyfir hendurnar á ökumanni, og sú ævintýraferð endaði á ljósastaur, þá búið að keyra 840km frá swappi!
Hér er síðan mynd af því;
Þetta tjón þótti ekki eins alvarlegt og ég bjóst við, og kapparnir í Bílar & Hjól gjörsamlega björguðu mér og gerðu mjög snyrtilega við bílinn. Fékk m.as. facelift afturljós og var mjög sáttur við mitt!
Hér eru síðan myndir af afturendanum eftir að búið var að gera við sárin eftir slagsmálin við ljósastaurinn!
Nú er ferðasagan ekki búin. Eftir að ég losaði bílinn út af réttingarverkstæðinu þá komst ég 85km

og þá bara alltíeinu kom hvellur, og reykur.. Þarna var þá s.s. kúplingspressan sprungin, en það hlaust af því að kúplingsdiskurinn snéri öfugt og tengdi því aldrei allmennilega og var því alltaf að snuða (þó svo að ég hefði ekki fundið fyrir því) og þessvegna hafði pressan hitnað, og hitinn var orðinn svo gífurlegur að pressan brotnaði og skemmdi s.s. kúplingsdiskinn og swinghjólið.
Svo var það sem að amaði lagað og þá fór nýja UUC swinghjólið í stöppu og því var síðan skipt út fyrir orginal. Ápgreidaði framljósin með gömlu ljósunum hans ONNO
Síðan lenti bílinn í einhverjum ævintýrum á Akureyri og var skemmdur þar, en það fór allt á góða vegu því að bíllinn verður nánast heilmálaður að undanskildum toppnum
Hérna eru nokkrar myndir úr sprautuklefanum;
Hérna eru myndir teknar; 1.mai 2007
