Er það ekki orðið ansi teygjanlegt hugtak þegar bíll sem er framleiddur 07/1998 er seldur hér sem árgerð 2000? Kannski er það bara ég en mér finnst þetta ekki sniðug þróun.
Ef ég man rétt var fyrir nokkrum árum síðan hætt að skrá árgerðir nýrra bíla sem skráðir voru hjá Bifreiðaskrá (Umferðarstofa í dag). Ég man ekki nákvæmlega af hverju þessu var hætt en það virðist greinilega vera söluaðilum til hagsbóta og ekki kaupendum.
Hvað segið þið um svona, ætli það sé mikið um þetta hér? Og hvaða skoðanir hafið þið á þessu? Er þetta kannski bara vitleysa í mér að finnast þetta skrítið?



