by fart » Thu 17. Nov 2005 10:21
Mér finnst reyndar alveg ótrúlegt hvað þið eruð brattir með þetta. Látið eins og þessir "kallar" sem kaupa svona bíla hafi engar skoðanir á því hvað þeim finnst flott. Sumir af þessum mönnum eru sjúklegir bíladellukallar.
Silfur er ekki tískulitur frekar en svartur, þetta er klassískur bílalitur. Skoðið bara söguna. Í hvaða lit kom t.d. Porsche 959, Mercedes Benz SL300 Máfurinn, Shelby GT500 (elonor), hann var grár. Þýskir bílaframleiðendur (sérstaklega þeir) hafa gjarnan komið með sína "spes" bíla í Silfur, svörtu eða gráu, t.d. M3 CSL (reyndar hefði ég viljað sjá hann í BMW racing hvítum, en það er annað mál).
Klassískur M litur er blár t.d., Avus, Interlagos, LeMans, Estoril.
Ég er persónulega heitastur fyrir svörtum bílum (nema Ferrari), en stundum finnst mér silfur sýna línurnar betur en svartur. Grár er mjög functional litur, mechanical, passar vel við highly engineered bíla finnst mér.
Eina sem ég myndi hræðast, og hræðist er það að ég yrði mega leiður á því að vera með einhvern funky lit á bílnum. T.d. er Laguna Seca blár mjög töff.. en myndi maður vilja eiga þannig sam daily driver. Allavega ekki ég.
Ef við tölum um tísku í bílum þá er nær að segja að Grænt, vínrautt, gullsans, ljósblátt, brúnsans (brons) séu það.
Svona ef ég skoða söguna aftur í tíman á "almennum bílum" og já ég vann í bílaumboði í ansi mörg ár þá eru nokkrir litir sem koma upp í hugan.
1980-1985 var gullsans alveg málið,
1985-1990 blásilfur rokkaði,
1990-1995 bronslitir, og gult þótti bold já og vínrautt!
1995-1997 Grænsans, helst soldið ljóst
1997-2002 Dökkblátt er eina vitið
En á sama tíma hafa svartir, hvítir og silfraðir alltaf blívað. Sumir sem ég þekki vilja "bara" svarta bíla, og aðrir bara hvíta.
Last edited by
fart on Thu 17. Nov 2005 12:14, edited 1 time in total.
E36 M3GTtt