Þegar ég fór út í bíl í morgun og ætlaði að fara opna hann þá gat ég það ekki... ég kom lyklinum bara hálfum inn og ekkert virkaði.. lykillinn beyglaðist bara ef ég reyndi að snúa honum. Ég fór þá bara inn farþegameginn og ætlaði bara að tosa gaurinn upp(flipann?) en nei nei hann er alveg PIKKfastur niðri þannig að ég get ekkert opnað hurðina... Það var ekkert mál að opna hinar hurðarnar þannig að það er ekki eins og þær hafi verið frosnar eða eitthvað álíka og ég gerði ekkert öðruvísi í gær þegar ég læsti bílnum.. Hafið þið E30 sérfræðingar einhverja hugmynd um gæti verið að??
Árni


