Er ekki líka svoldið spes að þú sért að röfla yfir því að hann sé að röfla yfir þessu?
Ég pæli ég mikið í því hvar ég legg, hver er við hliðina og hvernig landið liggur í kringum. Ef ég sé ekki neitt gott fer ég annan hring, skoða eitthvað lengra frá þangað til ég finn stæði. Legg jafnvel númerin á bílunum við hliðina á minnið. Í verslunarmiðstöðum legg ég lengst frá inngangum og vel staðinn þar sem fæstu bílarnir eru og jafnvel tek tvo stæði. Megið kalla þetta klikkun, þar sem megnið af ykkur er alveg sama hvort þið fáið nokkrar "smádældir" á bílinn ykkar.
Finnst ekkert að því að taka tvö stæði, en ég er ekki hrifin af því ef það er nálægt inngangum því það er fólk sem á jafnvel erfitt með gang og það má leggja í stæðin nær inngangum og láta hurða bílinn sinn. Ég er á nýjum bíl og veit það að ég færi yfirum ef ég kæmi að bílnum mínum með
hurðardæld á og enginn miði með uppl. með símanúmer því lets face it, fólk er fífl upp til hópa og er drullusama um náungan. Ekki vil ég þurfa borga tugi þúsunda útaf einhver kjáni gat ekki drullast til að passa hurðina.
Ég kýs að vera glaður á hurðadældar-lausum bíl
