Engine flush

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Engine flush

Postby xiberius » Sun 06. Nov 2005 21:36

Ég er með M50B20 vél sem er ekin rúmlega 270 þús km, en virðist vera mjög heilleg.

Það fer að líða að smurningu hjá mér, og ég er búinn að vera að pæla í hvort ég eigi að hætta á að flush'a vélina. Getur einhver hérna sagt mér hvernig M50 myndi höndla svoleiðis, sérstaklega þegar hún er þetta mikið ekin?

Á ég kannski bara að setja hreinsiefni í bensínið, smyrja bílinn og setja Militec á hana? Hvað finnst ykkur?

Vinnufélagi minn var líka að keyra á eftir mér um daginn, og sagði mér að það hefði komið vond lykt aftan úr honum þegar ég gaf honum dáldið hressilega inn. Reykurinn virtist líka vera dáldið mikill, en hvítur. Samt vantar ekkert kælivatn á hann eða neitt þannig.

Væri gott að heyra ykkar pælingar í þessu máli...
xiberius
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 89
Joined: Sun 03. Apr 2005 03:44

Postby gunnar » Sun 06. Nov 2005 22:31

Varðandi hvíta reykinn, getur heddið verið farið ? :?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby arnib » Sun 06. Nov 2005 22:51

gunnar wrote:Varðandi hvíta reykinn, getur heddið verið farið ? :?


Hvítur reykur (í einhverju magni) bendir til að það sé að komast vatn inn í sprengirýmið
sem þýðir oftast heddpakkning, þó að hitt komi líka til greina auðvitað.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby gstuning » Sun 06. Nov 2005 22:55

Ef ég væri þú þá myndi ég láta kíkja á þetta með heddið..
það er mikilvægara en olíu pælingar þínar
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby xiberius » Mon 07. Nov 2005 03:04

Ég var búinn að pæla í heddpakningunni, en það virðist ekkert vera að ganga á kælivökvan. Getur þetta verið eitthvað annað? Svosem líka alveg möguleiki að þetta sé ekkert hvítara en það á að vera, hef ekki séð þetta sjálfur, sko...
xiberius
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 89
Joined: Sun 03. Apr 2005 03:44

Postby Svezel » Mon 07. Nov 2005 10:06

losaðu yfirfallsslönguna fyrir vatnskassann og styngdu henni ofan í gosflösku fulla af vatni.... ef það koma loftbólur þá er heddpakkningin alveg að fara
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby xiberius » Tue 08. Nov 2005 21:34

Takk fyrir það, testa það kannski. Annars ákvað ég að fara með hann inní Kistufell og fá þá til að þrýstiprófa fyrir mig vatnsganginn, svona til að vera on the safe side.

Hann á tíma í fyrramálið, þannig að ég veit 100% hvort það er að tapast vatn annað kvöld.

Ef ég þarf að skipta um heddpakningu, er þá eitthvað sniðugt mod sem fólk mælir með, sem væri hægt að gera um leið? (helst eitthvað annað en að plana heddið alveg niður, vil helst ekki taka meira af því en þarf...)
xiberius
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 89
Joined: Sun 03. Apr 2005 03:44

Postby IvanAnders » Tue 08. Nov 2005 22:05

Ef að það þarf að plana heddið að þá er það náttúrulega gert, og ég sé ekki ástæðu til að einhver plani meir en þarf, ef að þú ert hræddur um að heddið sé skakkt, láttu þá bara mæla það og plana, held að það borgi sig ekki í þessum málum að spara neitt, láta bara gera það sem að þarf :!:

gangi þér vel með þetta :wink:
User avatar
IvanAnders
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3733
Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Location: 108

Postby Halli Smil3y » Tue 08. Nov 2005 23:57

fáðu þér bara M50 2.5 :twisted:
Nissan Almera 1600 Luxury
320ia E36 ///M-tech *rip*
Halli Smil3y
Kassabílstjóri
 
Posts: 110
Joined: Thu 14. Jul 2005 00:17
Location: >_<


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests