Aksturstalvan

Hér skal spjalla um BMW.

Postby bebecar » Sat 15. Oct 2005 19:31

oskard wrote:
anger wrote:eruði mongoliotar það er verið að tala um aksturstölvuna í e39 ekki orðabók


það er langt síðan hann fékk svör við þeirri spurningu


Eruði monGOLIOTAR :?:

Ég legg árar í bát :lol:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Beggi » Sun 16. Oct 2005 23:42

takk fyrir mig
E500 05
ZX6R 07
Beggi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 258
Joined: Tue 11. Mar 2003 15:09
Location: Reykjavík

Postby Zyklus » Mon 17. Oct 2005 01:28

Finnst alltaf furðulegt þegar fólk afsakar lélegt málfar með því að segja að þetta sé bara eðlileg málþróun.

Eins og einhver benti hér á þá verður vitlaust aldrei rétt sama hvað „meirihlutanum“ finnst.

Er sammála bebecar að maður fær það oft á tilfinninguna að fólk sé ekkert sérlega vel gefið skrifi það alveg skelfilega íslensku. Auðvitað gerir fólk oft einhverjar smávillur eða fólk er lesblint eða eitthvað í þeim dúr en miðað við hversu margir afsaka sig með lesblindu hljóta Íslendingar að hafa óvenju hátt hlutfall lesblindra...
BMW E34 525iA '95
User avatar
Zyklus
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 405
Joined: Sun 28. Mar 2004 23:48

Postby anger » Mon 17. Oct 2005 18:51

hehehehe kannski :oops:
BMW E38 750
Gömlubílarnir
BMW e39 523
BMW e36 325
BMW 740 e38
BMW z3 '99 Coupé
BMW M5 e34
BMW 730 e32 2x
BMW 750 e32 2x
User avatar
anger
Getawaybílstjóri
 
Posts: 791
Joined: Fri 22. Oct 2004 13:04

Postby xiberius » Tue 18. Oct 2005 18:42

Ég ætla að fá að vera ósammála ykkur með að það sé rangt að segja "talva".

Tungumál er lifandi hlutur, og þróast sem slíkur, burtséð frá reglum sem að því lúta. Þó að upphaflega hafi verið rangt að segja "talva" vegna þess að orðið tölva er samsett úr orðunum tala og völva, þá hefur þróun málsins orðið sú að mjög margir segja frekar "talva". Þar sem þetta skilst alveg og getur ekki verið skilið sem neitt annað en tölva, þá hefur þessi mynd orðsins náð að festa sig í sessi í málinu og er orðinn hluti af því. Því verður ekki breytt nema mögulega með þjóðarátaki, auglýsingum og þessháttar, sem er (að mínu mati allavegna) óþörf tilraun.

Málfræðireglur tungumáls segja ekki til um hvernig það á að vera um ókomna framtíð, heldur lýsa helstu málvenjum á hverjum tíma, og breytast því með þróun málsins.

Á hinn bóginn er orðið "talva" hins vegar "ljótt mál" og því einungis samþykkt í töluðu máli samkvæmt íslenskri málfræði. Ég er persónulega þeirrar skoðunar að það sé mun fallegra að nota tölva (og hér er ég að tala um talað mál), en það eitt og sér nægir ekki til að segja að annað sé rangt.


P.S.
Dauðir hlutir geta heldur ekki verið vitlausir, einungis rangir. Að segja að þeir séu vitlausir gerir ráð fyrir að þeir geti haft vit, en hafi það ekki... :wink:

...og já, ég geri mér alveg grein fyrir að það sé hægt að finna fullt af málfars- og stafsettningarvillum hjá mér, svo "bring it on" bara! 8)
xiberius
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 89
Joined: Sun 03. Apr 2005 03:44

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests