by Þórður Helgason » Wed 07. May 2003 00:12
Þráðurinn er orðinn nógu langur. það er rétt.
Ég lít ekki svo á að við séum að rífast, alls ekki. Spurningunni var varpað upp og ég tek eftir því að menn skilja ekki hvernig mismunadrif virkar, né hvernig er einfaldast að finna út, ca. hvert hlutfallið er undir bílunum.
Ég held að ég hafi skýrt allvel hvernig er einfaldast að finna það.
Ég skora á ykkur að prófa þetta, það kostar eina skítuga peysu þess sem leggst undir bílinn og telur hringina sem skaftið snýst. Hinn þarf bara að snúa hjólinu rólega einn hring.
Drifið undir bílnum skiptir nefnilega öllu, þegar á að koma bílnum áfram og með breyttu drifi er hægt að gera sæmilega öflugan bíl, sem kemst kannski í 220 í hrikalegan spyrnubíl sem kemst kannski bara í 160, en það dugir oftast.
Sjáumst á bíladögunum.
2002 árg 1969 rip
2002 árg 1971 rallýbíll (læknabíllinn) rip?
2000CA árg 1968 í langtímahvíld.
735i árg 1980 seldur.
318i árg 1989 seldur.
540i árg 1996. Frábær vagn. Seldur.