Er með felgur undir bílnum mínum sem eru með rétt gatamál en miðjan í felgunni er stærri en hringurinn á nafinu sem felgan á að stýrast af. Þar af leiðandi eru felgurnar ekki í centrum og það leiðir titringur upp í stýri, er hækt að fá hringi úr fíber sem eru passandi í td. Hjólbarðahöllinni eða þarf ég að láta renna þetta.
Hjólbarðahöllinn ætti að geta bjargað þér. Þeir mæla þetta út fyrir þig og renna fyrir þig plaststykki. Það er reyndar einhver aðili sem gerir þetta fyrir þá, man ekki hvað fyrirtækið heitir en það er í höfðanum. Þetta kostar minnir eitthvað um 500-700 kr. stk.